Um okkur
Prosokkar býður upp á gríðarlega vandaða grip-sokka, hannaða hér á Íslandi.
Stofnandi fyrirtækisins er íþróttamaður sem hefur keppt lengi á íslenskum knattspyrnuvöllum, og með því hefur hann góða innsýn í hvað góðir sokkar þurfa að hafa til að bæta frammistöðu, vera þægilegir og endingagóðir – og allt þetta á sanngjörnu verði.
Við erum lítið fyrirtæki staðsett í Reyðarfirði og leggjum áherslu á handverk og gæði í hverri vöru. Við sendum vörur um allt land, og fyrir viðskiptavini á Austurlandi er hægt að sækja án endurgjalds.
Hvort sem þú ert á fótboltavellinum, í ræktinni eða í einhverri annarri íþrótt, þá er Prosokkar hér til að bæta þína frammistöðu.
