Frí sending með Póstinum fyrir pantanir yfir 10.000 kr. – Free shipping with Posturinn on orders over 10,000 ISK.

Skilmálar

Almennt

ProSokkar.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða annarra tæknilegra villa.
Einnig er heimilt að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir án fyrirvara.
ProSokkar.is áskilur sér rétt til að staðfesta pantanir símleiðis ef þörf þykir.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar innan tveggja virkra daga eftir að greiðsla hefur borist, nema sérstakar aðstæður valdi töfum.
Afhendingartími er í flestum tilfellum 1-4 virkir dagar.
Sé vara ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og upplýsa um áætlaðan afhendingartíma.

Pantanir eru sendar með Íslandspósti og gilda því afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um sendinguna.
ProSokkar.is er ekki ábyrgur fyrir tjóni eða tapi í flutningi.
Skemmdir eða tap eftir að varan hefur verið afhent eru á ábyrgð kaupanda.

Sendingargjald um allt land (Postbox) er 990 krónur með VSK og bætist við heildarverð vörupöntunar.
Engin sendingargjöld eru ef verslað er fyrir 10.000 krónur eða meira.

Ábyrgð

Allar vörur sem seldar eru á ProSokkar.is koma með tveggja ára ábyrgð fyrir einstaklinga og eins árs ábyrgð fyrir fyrirtæki, nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi á rétt á að hætta við kaupin innan 14 daga frá afhendingardegi, að því tilskildu að varan sé ekki notuð, ósködduð og í upprunalegum og óopnuðum umbúðum.
Inn sigluð vara má ekki opna.

Kvittun eða reikningur þarf að fylgja vörunni við skil.
Endurgreiðsla er að fullu framkvæmd að því gefnu að skilyrði séu uppfyllt og varan móttekin á ábyrgð ProSokkar.is.
Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur.

Vinsamlegast hafið samband í tölvupósti á [your-email@domain.com] ef spurningar vakna varðandi skil eða endurgreiðslu.

Varnarþing

Skilmálar þessir eru túlkaðir í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur verður hann leystur fyrir íslenskum dómstólum.

Verð

Verð í netverslun ProSokkar.is geta breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð í verslun eru með virðisaukaskatti (VSK) og reikningar gefnir út samkvæmt íslenskum skattalögum.

Trúnaður

ProSokkar.is verndar persónuupplýsingar viðskiptavina með fullum trúnaði og afhendir ekki þriðja aðila nema ef lög skylda til eða með samþykki kaupanda.